Árshátíð aflýst, út að borða í staðinn

Árshátíð Vinnslustöðvarinnar er aflýst vegna veirufaraldursins. Samkoman hefði að öllu eðlilegu verið núna í október með annáluðum glæsibrag; dýrindis mat, skemmtiatriðum, dansi og herlegheitum í góðum félagsskap - allt í boði fyrirtækisins handa starfsmönnum og mökum þeirra.

Skarðið sem árshátíðin skilur eftir sig í ár verður auðvitað ekki fyllt en svona gerist á síðustu og verstu farsóttartímum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Vinnslustöðin færir hverjum starfsmanni sínum ávísun upp á tíu þúsund krónur og með henni er hægt að greiða fyrir mat á þremur veitingastöðum í Eyjum: Einsa kalda, Gott eða Tanganum.

Vinnslustöðin býður þannig starfsmönnum sínum út að borða í sárabótarskyni en hvetur þá jafnframt til þess að fara ekki saman í stórum hópum og ganga hægt um gleðinnar dyr.

„Við höfum fengið ótrúlega jákvæð og góð viðbrögð frá starfsmönnum og reyndar í bæjarfélaginu yfirleitt. Fólk er afar þakklátt fyrir ákvörðun fyrirtækisins og skilur vel að ekki er mögulegt að efna til árshátíðar í ástandinu sem ríkir því miður í þjóðfélaginu um þessar mundir,“  segir Lilja Björg Arngrímsdóttir sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar.

Addi í London tók myndirnar 2017 en þær tóku sig sjálfar 2018, öllum gjörsamlega að óvörum.

 

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.