Viðbygging frystigeymslunnar rís

Hafist var handa nú í byrjun vikunnar við að reisa stálgrind fyrir nýjan klefa frystigeymslu Vinnslustöðvarinnar á Eiði. Pólskt fyrirtæki framleiðir húsið og reisir það. Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði tilbúin í sumar og nýtist á komandi makrílvertíð.

Gólfflötur frystigeymslunnar nær þrefaldast með viðbyggingunni. Núverandi frystiklefi er tæplega 2.000 fermetrar og þjónusturýmið er liðlega 300 fermetrar. Nýbyggingin verður tvískipt á alls 3.800 fermetrum.

Fyrstu hlutar stálgrindar reistir 16. janúar 2017.

Lofthæð er 7,5 metrar í núverandi húsi en verður 10 metrar í nýja hlutanum.

Í nýbyggingunni verður mótordrifið kerfi hreyfanlegra rekka sem stuðlar að betri nýtingu geymslurýmisins og gerir mun auðveldara og aðgengilegra en ella að setja frystivörur í klefana og taka úr þeim aftur.

Aðalverktaki við stækkun frystigeymslunnar er Eykt, sá hinn sami og annaðist framkvæmdir við nýja uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar.

Pólskur undirverktaki reisir stálgrindahúsið, Yabimo frá borginni Tarmow í suðausturhluta Póllands. Þetta er stórt og mikið iðnfyrirtæki sem reisir stálmannvirki af ýmsu tagi og annars konar hús og mannvirki, svo sem brýr.

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.