Kap II á netaveiðum

Kap II VE 7 hefur hafið netaveiðar og kom úr fyrstu veiðiferðinni í dag eftir að hafa farið út síðustu nótt.

Aflinn var 40 kör af þorski og ufsa og fékkst hann austan við Bjarnarey.

Fyrsta veiðiferðin gekk ágætlega en eitt og annað þarf þó að lagfæra, enda eru komin 10 ár síðan netaveiðar voru síðast stundaðar á skipinu.

Kap II hefur undanfarin ár verið varaskip við loðnuveiðar, síðast á árinu 2015.

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.