Fyrsti kolmunnafarmurinn til Eyja

Ísleifur VE, skip Vinnslustöðvarinnar, kom til heimahafnar í dag með fyrsta kolmunnafarminn sem tekið er á móti í Eyjum á þessu ári. Í skipinu voru um 2.000 tonn sem veiddust suður af Færeyjum.

„Kolmunninn er horaður ennþá og á eftir að bæta á sig þegar kemur fram á sumarið. Vertíðin lítur annars vel út, við heyrum að mikið hafi fengist af kolmunna við Írland í vetur og úr þeim sama stofni veiddum við nú,“ segir Helgi Geir Valdimarsson, skipstjóri á Ísleifi. 

„Við sigldum 420 mílur af miðunum til Eyja og vorum hálfan annan sólarhring á leiðinni í slæmu veðri á kafla. Ég geri ráð fyrir því að við förum út aftur á morgun.“

Um borð í Ísleifi í veiðiferðinni.

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.