Breki og Páll frá sjónarhorni fuglsins fljúgandi

Glæsilegir eru þeir togarabræðurnir Breki VE og Páll Pálsson ÍS í höfn í Kína. Myndirnar eru teknar með dróna.

Þessa dagana er unnið að því í skipasmíðastöðinni að taka út og keyra upp spilkerfin í skipunum. Það er komið vel á veg í Breka og síðan verður tekið til við sama verkefni í Páli Pálssyni. 

Þetta mjakast þannig áfram; drjúg eru frágangsverk og innansleikjur ...

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.