Tíðindi af netabátum VSV og öflugum Austfirðingum

Kap II VE-7 er komin til heimahafnar í Eyjum eftir að hafa stundað grálúðuveiðar við austurströndina frá því í byrjun júlí. Veiðarnar gengu vel og aflinn var alls 660 tonn.

Kap II landaði á Eskifirði og sótti alla þjónustu þangað og til Reyðarfjarðar. Samstarf við alla aðila þar var mjög gott og verðskulda Austfirðingar bæði hrós og þakkir af því tilefni.

Kap II

Eftir árangursríkt grálúðuúthald á Kap II flytja Kristgeir A. Ólafsson skipstjóri og menn hans sig yfir á Glófaxa VE. Vinnslustöðin keypti sem kunnugt er Útgerðarfélagið Glófaxa ehf. sem hefur gert út Glófaxa VE um áratuga skeið. Skipið heitir nú Sleipnir VE-83 og mun Vinnslustöðin gera það út undir því nafni. Sleipnir VE veiðir á næstu mánuðum þorsk, ufsa og skötusel í net.

Glófaxti VE - nú Sleipnir VE. Mynd: Tryggvi Sigurðsson

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.