„Blönduð áhöfn“ á Ísleifi eltir kolmunna

„Við verðum væntanlega komnir á miðin suður af Færeyjum seint í nótt og byrjum að nudda í morgunsárið. Himnaríkisblíða var í fyrstu tveimur ferðunum en einhver breyting verður á því núna,“ sagði Magnús Jónasson skipstjóri, Maggi á Ísleifi VE, seint í gærkvöldi. Skipið var þá komið langleiðina á kolmunnamiðin við Færeyjar í þriðja túrnum á vertíðinni.

Ísleifur kom með fullfermi heim úr fyrri veiðiferðum. Maggi var skipstjóri í þeirri fyrstu og er það í líka nú í þeirri þriðju en Jón Atli Gunnarsson var skipstjóri í ferð númer tvö. Sá síðarnefndi er annars skipstjóri á Kap VE.

Kap er í slipp á Akureyri og er þessa stundina bundinn skrúfulaus við bryggju. Þess vegna koma bæði áhafnir Ísleifs og Kap við sögu veiðanna á Ísleifi til að allir njóti góðs af kolmunnaveiðunum.

„Það er auðvitað áhættubissness að blanda saman strákunum af Ísleifi og Kap og við þurfum að hafa þá í hólfum til öryggis ... nei, nei. Ég er bara að skálda!" sagði Maggi og hló dátt.

„Þetta gengur fínt, í miklu bróðerni. Milli áhafnanna er bara passlegur rígur. Ég held að mannskapnum finnist svona samsett áhöfn einfaldlega góð tilbreyting, gaman að kynnast innbyrðis og vinna saman.

Við vorum allir COVID-prófaðir fyrir brottför frá Eyjum og fylgjum öllum sóttvarnareglum af skynsemi hér eftir sem hingað til. Við höfum blessunarlega verið lausir við veiruna, sjö-níu-þrettán-bank í tré.

Svo förum við að nudda þegar komið er á miðin.

Þegar þessum túr lýkur verður stopp hjá Ísleifi og skipið fer í upptekt á vélinni. Kap tekur þá við keflinu en svo er að sjá hvað fiskeríið heldur.“

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.