Breki VE og Páll Pálsson ÍS nefndir sem fyrirmyndarskip í Hörpu

Eldsneytisnotkun með tilheyrandi afleiðingum fyrir umhverfi og andrúmsloft bara eykst og eykst á Íslandi, NEMA í sjávarútvegi. Þar hefur hún dregist saman um 43% frá 1990 til 2016. Þetta kom fram á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 og í því samhengi brá fyrirlesari upp mynd af Breka VE fyrir að „veiða á við tvo en eyða olíu á við einn“!

Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútveg, flutti erindi í málstofu um umhverfismál sjávarútvegsins á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í dag. Hann brá upp tölum og upplýsingum sem sýndu ljóslega að sjávarútvegur landsmanna er í algjörri sérstöðu á Íslandi. Því er þannig spáð að eldsneytisnotkun í greininni dragist saman um 134.000 tonn á ári frá 1990 til 2030. Það jafngildir samdrætti upp á 54%!

Stjórnmálamenn og skoðanahönnuðir í fjölmiðlakerfinu, berja sér gjarnan á brjóst fyrir að vera miklir umhverfissinnar og náttúrunnar menn í hvívetna, en passa vel hafa ekki hátt um forystu sjávarútvegsins í því að draga úr eldsneytisnotkun svo um munar – á borði en ekki bara í orði! Það má nefnilega helst ekki segja neitt jákvætt um atvinnugreinina og þess vegna er heillaráð að þegja, þykjast hafa gleymt eða ekkert hafa heyrt um málið ...

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.