Dáðadrengur í hrognafrystingu

Elfar Frans Birgisson, 21 árs gamall Eyjapeyi, hefur unnið í Vinnslustöðinni á vertíðum frá árinu 2014, fyrst á sumrin í fiski en síðan undanfarin ár í uppsjávarhúsinu.

Núna vinna hann og aðrir í uppsjávarvinnslunni hörðum höndum við að frysta hrogn á síðustu sólarhringum loðnuvertíðar. Að morgni dags eftir tólf tíma næturvakt læddi Elfar Frans sér inn til Eydísar matráðs í gömlu kaffistofunni, fékk sér hafragraut og fór svo heim að sofa. Úthvíldur mætt'ann að vanda á næstu vaktina sína.

Hann er sannkallaðir dáðadrengur, hörkuduglegur og áreiðanlegur!

 

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.