Jólaþorskur í þungavigtarflokki

Ónefndur viðskiptavinur sölufyrirtækisins Frescolouro í Portúgal fer ekki í jólaköttinn í ár. Frescolouro kaupir saltfisk af framleiðslu- og sölufyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, Grupiexe, og selur viðskiptavinum sínum.

Sá ónefndi var svo heppinn að krækja í fisk sem vegur 12 kíló fullþurrkaður til að bera á hátíðarborð stórfjölskyldu sinnar um jólin. Ætla má að golþorskurinn hafi verið að minnsta kosti 40 kíló að þyngd upp úr sjó á sínum tíma og verið lengri með haus en sem nemur hæð brosmildu stúlkunnar á myndinni – sem reyndar er meðeigandi í Frescolouro!

Nú fer í hönd mikill annatími starfsliðs Grupiexe við að sjá veitingahúsum, verslunum og almenningi í Portúgal fyrir saltfiski fyrir hátíð jólanna. Saltfiskur er jólamatur á yfirgnæfandi meirihluta heimila í Portúgal og sá íslenski þykir sá besti og er eftirsóttur í samræmi við það.

Saltfiskur fæst líka hjá Grupiexe í gjafaöskjum handa fólki og fyrirtækjum sem vilja gleðja sína nánustu, vini eða viðskiptavini með þessari dýrindis sjávarafurð frá Vestmannaeyjum.

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.