Kap með fyrsta loðnufarm ársins til VSV

Kap kom til Vestmannaeyja í nótt með fyrsta loðnufarminn á nýju ári. Ísleifur fylgdi í kjölfarið og Huginn er á leið heim líka af miðunum fyrir norðan og austan land.

Vinnslustöðvarskipin þrjú færa alls að landi liðlega fimm þúsund tonn til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni.

Ætla má að lokið verði við að landa úr öllum skipum aðra nótt og mikið verður því um að vera hjá Unnari Hólm og hans liði í bræðslunni næstu sólarhringa,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs VSV.

Loðnuvertíðin er sannarlega hafin og gott er það. Samt er ekki mikill kraftur í veiðunum enn sem komið er, frekar hægt að tala um kropp.“

 

  • Myndin sem fylgir fréttinni er úr einstæðri upptöku Erlendar Bogasonar frá því í mars 2021 þegar hann kafaði bókstaflega niður í loðnutorfu á Faxaflóa og myndaði það sem fyrir augu bar - sem var ekki lítið! Erlendur er fyrstur manna sem slíkt hefur gert í veröldinni að því best er vitað.
Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.