Pönnusteikta loðnu á diskinn, takk!

 

Wenyi Zeng kokkur á veitingastaðnum Canton í Vestmannaeyjum fer létt með að sýna og sanna að loðna er ljómandi góður matur. Hún steikti hængi og hrygnur á pönnu í hádeginu í dag og hefði fengið margar stjörnur hjá Jónasi heitnum Kristjánssyni matrýni fyrir ferskleika hráefnis og einfalda en ljúfmannlega matreiðslu.

Hún lét fiskinn stikna í lítilræði smjörlíkis, stráði fyrst örlitlum sykri yfir og kryddaði svo. Hádegismatur sem sagði sex, jafnvel sjö. Hrygnan fær eina stjörnu umfram hænginn, þökk sé hrognafyllingunni.

Loðna hefur engri festu náð í matarmenningu Íslendinga og þarf auðvitað að veiðast til að eiga möguleika á slíku. Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari prófaði forðum daga að bjóða þurrkaða loðnu að japönskum hætti sem eins konar snakk á veitingastaðnum sínum í Reykjavík en náði ekki að heilla barflugur að marki.

Stefán Úlfarsson matreiðslumeistari á Þremur frökkum reyndi líka fyrir sér með loðnu og birti fyrir margt löngu í Morgunblaðinu uppskrift að loðnuforrétti til að „matreiða í næsta matarborði þegar mikið liggur við.“  Hann gerði ráð fyrir að velta loðunni upp úr eggjum og hveiti fyrir steikingu í smjörlíki. Fleiri uppskriftir í svipuðum dúr er að finna á Vefnum ef að er gáð og gjarnan látið fylgja með að steikt loðna sé fyrirtaks forréttur. Einn kaldur á borðkantinum með réttinum telst bónusánægja.

Wenyi Zeng á Canton fór einföldu leiðina með hráefnið. Það lukkaðist sérlega vel.

Cookies on VSV website.

This site uses cookies. By browsing our site you acknowledge that you have read and agree with our cookie policy.