Við biðjumst velvirðingar
Fiskimjölsbræðsla VSV var gangsett síðastliðinn miðvikudag, 3. júlí, í fyrsta sinn í tæpa tvo mánuði. Síðan kolmunnavertíð lauk hefur tíminn verið notaður til að sinna viðhaldi og undirbúningi fyrir komandi makríl- og síldarvertíð. Þar af leiðandi var ekki alltaf hægt að gangsetja verksmiðjuna. Á sama tíma safnaðist fyrir hráefni frá fiskvinnslustöðvunum í bænum og af því stafaði ólykt þegar vinnsla hófst.
Vinnslustöðin harmar þau óþægindi sem bæjarbúar og gestir í bænum urðu fyrir og biðst afsökunar vegna þess sem þarna átti sér stað.
Verklag við gangsetningu bræðslu við slíkar aðstæður hefur verið endurskoðað og fyrirtækið mun tryggja að héðan í frá verði unnt að vinna hráefnið með jafnari hætti.