Fara á efnissvæði
World Map Background Image
432626680 921754006022789 3261382412645219137 N Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Fimmtubekkingar í Grunnskóla Vestmannaeyja sóttu Vinnslustöðina heim í byrjun vikunnar til að fræðast um loðnu, bæði munnlega og verklega.

Þetta er árleg heimsókn af sama tilefni enda loðnan bekkjarfiskur fimmtubekkinga og Vinnslustöðin kjörin vettvangur til að gaumgæfa þennan verðmæta en duttlungafulla fisk á alla vegu, sama hvort loðna veiðist það árið eður ei.

Þannig er nú ástatt nú um stundir að loðnan veiðist ekki en Vinnslustöð sá við dyntum hennar  með því að eiga í frystigeymslu nokkrar öskjur frá því í fyrra handa grunnskólagestunum ungu til að rannsaka.

Benoný Þórisson, framleiðslustjóri fiskvinnslu VSV, og Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs, tóku á móti gestunum, fræddu þá og leiðbeindu þeim við rannsóknir. Krakkarnir urðu margs vísari og fengu í lok safa & súkkulaði í kaffistofu starfsmanna VSV.

Vinnslustöðin þakkar fyrr komuna!

  • ·      Myndirnar tóku Benoný Þórisson og Lilja Björg Arngrímsdóttir.