Flutningar eru ekki lúxus – þeir eru lífæð atvinnulífsins
Vinnslustöðin hf. vill vekja athygli á alvarlegri stöðu í flutningsmálum til og frá Vestmannaeyjum. Undanfarnar vikur hafa tíðar tafir, ófyrirsjáanleiki og röskun á flutningum haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins og getu þess til að standa við afhendingar til viðskiptavina.
Fyrirtækið er nýkomið út úr loðnuvertíð og hefur sett upp afhendingaráætlanir sem nú ganga illa eftir vegna óstöðugleika í flutningakerfinu. Á sama tíma gengur erfiðlega að koma afurðum á markaði, meðal annars saltfiski til Portúgals í þurrkun.
Hráefnisflæði óáreiðanlegt
Að sögn Sverris Haraldssonar, sviðsstjóra bolfiskssviðs, hefur hráefnisflæði til vinnslu verið óstöðugt.
„Hráefni berst ofan af landi frá skipum VSV, viðskiptabátum og fiskmörkuðum, flutningar frá Reykjavík hafa brugðist með skömmum fyrirvara. Þá er flutningsgeta Herjólfs takmörkuð og flutningar hægir.
Þessi ófyrirsjáanleiki veldur því að hráefni kemur annaðhvort of seint eða í ójöfnu magni. Afleiðingin er sú að vinnslan hefur ekki alltaf getað verið á fullum afköstum og jafnvel orðið hráefnislaus á köflum.“
Skipulag flutninga raskast ítrekað
Þrátt fyrir mikið umfang flutninga síðustu vikur hefur skipulag þeirra verið óstöðugt. Gámaskip hafa ítrekað verið send til Vestmannaeyja með stuttum fyrirvara til að „tappa af“ höfninni og flytja gáma annað, í stað þess að fylgja áætlun.
Slíkt rask veldur auknum kostnaði, meiri umsýslu og verulegri óvissu í rekstri.
„Eimskip sleppti viðkomu í Vestmannaeyjum í dag vegna veðurs sem nú er gengið niður – eins og spár gerðu ráð fyrir.
Ákvarðanir skipafélaga hafa bein áhrif
Vinnslustöðin gagnrýnir ákvarðanir skipafélaga sem hafa haft bein áhrif á hráefnisflæði til fyrirtækisins.
„Eimskip sleppti viðkomu í Vestmannaeyjum í dag vegna veðurs sem nú er gengið niður – eins og spár gerðu ráð fyrir. Skipið sigldi framhjá Eyjum og það hefði ekki tafið það mikið að koma hér við. Sú ákvörðun hefði hins vegar skipt sköpum fyrir hráefnisflutninga til okkar, sem eru nú í miklum óefnum,“ segir Björn Matthíasson, rekstrarstjóri VSV Seafood Iceland, sem bendir einnig á að undanfarið hefur fyrirtækið verið að flytja út 30-35 gáma á viku.
Landeyjahöfn og ábyrgð Vegagerðarinnar
Óstöðugleiki í rekstri Landeyjahafnar hefur lengi verið þekktur vandi og hefur bein áhrif á flutningsöryggi til Eyja. Vinnslustöðin telur ljóst að ábyrgð Vegagerðarinnar á stöðu hafnarinnar sé veruleg.
Takmörkuð dýpt og síendurtekin vandamál við rekstur hafnarinnar draga úr áreiðanleika siglinga Herjólfs og setja þannig allt flutningskerfið í uppnám.
Benda má á að undanfarnar vikur hefur einungis verið hægt að sigla til Þorlákshafnar og fara þá ferðir Herjólfs úr 7 á dag niður í 2. Það þýðir að á viku fara ferðirnar úr 49 niður í 14. Slík fækkun hefur veruleg áhrif á flutninga til og frá Eyjum.
Það er óásættanlegt að þessi staða sé viðvarandi 16 árum eftir að Landeyjahöfn var tekin í gagnið.
Þegar siglt er í Þorlákshöfn fara ferðir Herjólfs úr 49 niður í 14 á viku. Slík fækkun hefur veruleg áhrif á flutninga til og frá Eyjum.
Stórskipahöfn við Eiðið – lykilatriði til framtíðar
Til lengri tíma telur Vinnslustöðin nauðsynlegt að horft sé til varanlegra lausna í flutningsmálum Vestmannaeyja. Ein slík lausn er uppbygging stórskipahafnar við Eiðið.
Með slíkri uppbyggingu væri unnt að taka á móti stærri skipum, auka flutningsgetu og sveigjanleika auk þess að draga verulega úr þeim frátöfum sem fylgir núverandi fyrirkomulagi. Ljóst er að styrkja þarf innviði Eyjanna sjálfra til að tryggja stöðugleika til framtíðar. Mikilvægur liður í því er slík höfn.
Flutningar eru grunnforsenda atvinnulífs
Áhrif óstöðugra flutninga ná langt út fyrir rekstur einstakra fyrirtækja. Þeir hafa bein áhrif á atvinnuöryggi og stöðugleika í samfélaginu.
„Áreiðanlegir flutningar eru ekki lúxus – þeir eru grunnforsenda atvinnulífsins í Eyjum,“ segir Björn að endingu.