11.4°CWNW · 2.6 m/s

Um okkur

Vinnslustöðin hf. (VSV) er útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki með höfuðstöðvar í Vestmannaeyjum.

Hver erum við?

Hjá Vinnslustöðinni og dótturfyrirtækjum starfa 4-500 starfsmenn í störfum tengdum sjávarútvegi, s.s. sjómenn, fiskvinnslufólk, tækni- og iðnaðarmenn ásamt sölu- og markaðsfólki og stjórnendum. Síðan 1946 hefur Vinnslustöðin tekist á við storma og stórviðri, eins og kröftug náttúra Vestmannaeyja er þekkt fyrir, en jafnframt góða kafla á milli. Hafstraumar og hitaskil sjávar staðsetja okkur í miðju gjöfulustu fiskimiða Íslendinga þar sem stutt er að sækja fiskinn. Við veiðum, vinnum og markaðssetjum hágæða íslenskan fisk á erlendum mörkuðum.

En það er ekki nóg að hafa fiskinn og náttúruna, við þurfum líka sjómenn sem geta staðið af sér storma og stórviðri við suðurströndina auk starfsfólks í landi og starfsfólk sem stendur vaktina á erlendum mörkuðum. Allt þetta er samofið svo unnt sé að bjóða neytendum, hvar sem er í heiminum, hágæða afurðir úr íslenskum fiski með góðum rekjanleika. Við leggjum mikla áherslu á sjálfbærni veiða því einungis þannig sjáum við fyrir okkur að Vinnslustöðin verði sjálfbært félag sem leggur samfélaginu gott til.

Sagan

Vinnslustöðin hf. var stofnuð 30. desember 1946.

Skömmu fyrir stofnun félagsins komu þrír útgerðarmenn saman og báru upp tillögu á aðalfundi Lifrarsamlags Vestmannaeyja um að skoðað yrði að fullvinna fiskafurðir félagsmanna. Tillagan hlaut góðar undirtektir og strax í kjölfarið stofnuðu 105 útgerðarmenn í Eyjum Vinnslu og sölumiðstöð fiskframleiðenda í Vestmannaeyjum (VSV) sem síðar fékk nafnið Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum. Allar götur síðan hefur saga félagsins verið samofin sögu Vestmannaeyja. Stofnendurnir voru staðráðnir í að bæta eigin hag og um leið hag samfélagsins.

Traust er mikilvægur þáttur mannlegs samfélags og allt frá stofnun hafa Eyjamenn mátt treysta því að eigendur og starfsfólk legðu sig alla fram við að byggja upp undirstöður Eyjanna. Það var því ekki að undra að eigendur VSV og FIVE (fiskimjölsbræðslunnar), neituðu að yfirgefa Vestmannaeyjar þegar gos hófst í Heimaey árið 1973, heldur ræstu loðnubræðsluna í miðju gosi og neituðu að rífa niður fiskvinnsluvélar félagsins og flytja þær til Reykjavíkur. Þeir sýndu kjark og áræðni sem þarf við erfiðar aðstæður. Þeir neituðu að gefast upp og börðust fyrir framtíð atvinnurekstrar í Eyjum og lögðu þannig grunnin að því sem við erum í dag.

Nú, 50 árum síðar, stöndum við í mikilli þakkarskuld við allt það fólk sem lagði hönd á plóg við endurbyggingu Eyjanna eftir þá miklu erfiðleika sem urðu í gosinu og í kjölfar þess. Í dag höfum við endurbyggt vinnslur félagsins að verulegu leyti sem og skipaflota. Markmið okkar eru skýr. Þau eru að byggja áfram á því góða verki sem unnið hefur verið innan VSV, nútímavæða fyrirtækið og nýta nýjustu tækni til að bjóða viðskiptavinum okkar ósnortinn íslenskan fisk af enn meiri gæðum en verið hefur.

Skipin okkar

Öldur úthafsins krefjast öflugra skipa. Skip þurfa að vera vel útbúin til að takast á við storma í hafi og á sama tíma að fara vel með áhöfn og afla. Meðhöndlun afla er afar mikilvæg til að vernda gæði, bæði með kælingu afla og hreinlæti. Það að við búum á eyju, mitt í gjöfulum fiskimiðum, gerir það að verkum að stutt er að sækja fiskinn og skila honum og áhöfn skipsins fljótt í land aftur.

Fyrir nokkrum árum lét Vinnslustöðin smíða togarann Breka, skip með stærri og hæggengari skrúfu en almennt gerist. Með því móti hefur olíunotkun dregist saman um 40–50% á hvert aflakíló sem og útblástur gróðurhúsalofttegunda.

Ein mikilvæg afleiðing fiskveiðistjórnunarkerfis Íslendinga er að olíunotkun og þar með útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur minnkað um 40% frá 1990. Sjávarútvegurinn hefur því mætt kröfum Parísarsáttmála Sameinuðu þjóðanna um samdrátt í kolefnisútblæstri.

Botnfiskskip félagsins

Uppsjávarskip félagsins

Sighvatur Bjarnason VE-81

Skipstjóri: Ólafur Óskar Stefánsson

412-1116

Netfang: sb@vsv.is

Aðstaðan okkar

Í Vestmannaeyjum rekum við bolfiskvinnslu, uppsjávarvinnslu, fiskimjölsverksmiðju og netaverkstæði ásamt frystigeymslu. Á síðustu tíu árum höfum við byggt upp nýja frystigeymslu og hátækniuppsjávarvinnslu. Við viljum tryggja viðskiptavinum okkar gæðahráefni og leggjum metnað okkar í að afhenda þeim góðar og hollar íslenskar afurðir.

Lyftari á milli hárra rekka af frystum afurðum í frystigeymslunni
Frystigeymslan

Ný frystigeymsla gerir okkur kleift að geyma og varðveita afurðir í lengri tíma á sama tíma og við tryggjum ferskleika þeirra og gæði.

Starfsmaður við pökkunarlínu með VSV kössum
Uppsjávarvinnslan

Uppsjávarvinnslan okkar nýtir nýjustu tækni til að auka framleiðni og draga úr sóun.

Stjórnarhættir og skjöl

Hér finnur þú stjórnarhætti félagsins, stefnur þess og samstæðuársreikninga á einum stað.

Skoða skjölin

1946

Stofnað í Vestmannaeyjum

~300

Starfsmenn

8

Samstarfsaðilar um allan heim

6

Skip í flotanum

Störf hjá VSV

Öll laus störf eru auglýst á störfasíðunni okkar.

Sjá laus störf