11.4°CWNW · 2.6 m/s

Afurðir / Mjöl og lýsi

Fiskimjöl

Fishmeal

Fiskimjölsverksmiðjan okkar vinnur próteinríkt LT-mjöl og lýsi úr loðnu, síld og kolmunna, undirstaða í fiskeldisfóðri um allan heim.

Vinnslustöðin framleiðir lýsi og tvær gerðir af fiskimjöli, hágæða NSM-mjöl (NorSeaMink) og staðlað fiskimjöl. Hráefni til fiskimjöls- og lýsisframleiðslu er aðallega sá hluti af síld, loðnu, makríl og kolmunna sem ekki er nýttur til manneldis. Fiskimjöl er unnið úr aukaafurðum Vinnslustöðvarinnar sem falla til við aðra vinnslu. Fiskimjöl er prótínríkt og er mikið notað ásamt lýsi við framleiðslu á fóðri fyrir fiskeldi. Kaupendur eru aðallega fiskfóðurframleiðendur í Noregi og eldisstöðvar í ýmsum Evrópulöndum, þar á meðal á Íslandi, sem einnig nýta fiskimjöl og lýsi frá Vinnslustöðinni. Lýsi er einnig notað í leðuriðnaði.