11.4°CWNW · 2.6 m/s

Samstarfsaðilar

ESBAL

Portúgal · Blautverkaður saltfiskur

Verkunarhúsið í Ílhavo

ESBAL er staðsett í Ílhavo, hjarta saltfiskmenningar Portúgals, við Ria de Aveiro-lónið. Félagið var stofnað árið 1993 og hefur í rúmlega þrjátíu ár sérhæft sig í blautverkun þorsks að hefðbundnum portúgölskum hætti, verkuninni sem gefur bacalhau sín einkenni. Gamalgróin verkkunnátta og nútímatækni fara saman og markmiðið er einfalt: ekta portúgalskur bacalhau, náttúrulegur að öllu leyti.

ESBAL er nú hluti af fjölskyldu Vinnslustöðvarinnar. Ásamt söltuninni í Vestmannaeyjum og Grupeixe í næsta nágrenni, í Gafanha da Nazaré, lokar ESBAL keðjunni frá íslenskum miðum að portúgölskum matarborðum. Einn eigandi, ein gæðastefna, frá veiðum til þurrkunar.

Náttúruleg vinnsla, frá salti að borði

Í verkuninni sjálfri birtist þrjátíu ára reynsla ESBAL: réttur fiskur, rétt salt og réttur tími. Strangt gæðaeftirlit og virðing fyrir hefðinni tryggja náttúrulega afurð sem stenst ströngustu kröfur portúgalskra neytenda.

Auk blautverkaðs saltfisks framleiðir ESBAL útvatnaðan frystan saltfisk sem fer beint í pottinn. Allar aukaafurðir eru nýttar, enda er virðing fyrir auðlindinni höfð að leiðarljósi.

Keðjan fullkomnuð

Vinnslustöðin hefur saltað þorsk fyrir Portúgalsmarkað í tæp 80 ár. Með ESBAL við hlið Grupeixe innan fjölskyldu Vinnslustöðvarinnar nær keðjan nú yfir öll stig: ESBAL blautverkar saltfiskinn en Grupeixe þurrkar hann og kemur á markað. Þannig tryggjum við gæði og rekjanleika á hverju stigi, frá Vestmannaeyjum að matarborðum Portúgals.

Heimasíða ESBAL →

Fleiri samstarfsaðilar

Marhólmar logo

Marhólmar

Einn fremsti framleiðandi heims á masago-hrognum í hæsta gæðaflokki.

Ísland · Masago

Okada Suisan logo

Okada Suisan

Stærsti framleiðandi loðnuafurða í Japan, á markaði þar sem aðeins hæstu gæði eru tekin gild.

Japan · Loðna

Hólmasker logo

Hólmasker

Handskorin ýsa í hæsta gæðaflokki, fersk og fryst.

Ísland · Ýsa