

Síld
Herring · Clupea harengus
Veiðar á norsk-íslenskri síld eru stundaðar frá lokum ágúst og fram í október. Í beinu framhaldi hefjast svo vanalega veiðar á íslensku sumargotssíldinni. Síldveiðar eru því úr tveim aðskildum stofnum, sumargotssíld sem hrygnir í júlí við Ísland og norsk-íslensku vorgotssíldinni sem hrygnir við Noreg í febrúar og fram í apríl.
Síld er mikilvæg í umhverfinu en hún er mikilvægt fæði stærri fiska sem og hvala. Síld er reykt, söltuð og edikverkuð til manneldis en það er afar mismunandi milli þjóða hvernig hennar er neytt.
Veiðistaður og veiðitímabil
Síldarafurðir
- Frosin heil
- Frosnir flapsar og flök, roðlaus eða með roði
- Hausuð og slægð


