11.4°CWNW · 2.6 m/s

Afurðir / Botnfiskur

Þorskur

Cod · Gadus morhua

Við veiðum þorsk allt árið um kring. Stærstur hluti aflans er veiddur á vetrarvertíðinni þegar þorskurinn gengur til hrygningar við suðvesturströnd Íslands. Þá eru gæði hans mest, fiskurinn er þéttur og stinnur. Þorskurinn hrygnir frá mars og fram í maí við suður- og vesturströndina en síðar fyrir Norðurlandi. Fiskurinn heldur sig á 100–250 metra dýpi.

Þorskur er mjög eftirsótt vara og vel þekktur meðal þjóða í Evrópu og Norður-Ameríku. Íslenskar fiskveiðar, þar á meðal veiðar Vinnslustöðvarinnar, hafa verið vottaðar af kröfuhörðum alþjóðlegum vottunaraðilum, s.s. Global Trust Certification.

Veiðistaður og veiðitímabil

Veiðistaður og veiðitímabil

Þorskafurðir

  • Fersk flök
  • Blautsaltaður, flattur
  • Söltuð fés
  • Saltaðir bitar og smástykki
  • Frosin flök, millilögð
  • Lausfryst flök
  • Pönnufryst blokk
  • Þurrkaður saltfiskur
  • Útvatnaður og frystur
  • 5 lbs cello
  • Niðursoðin þorsklifur
  • Þorskhrognamauk, sykursaltað og reykt
  • Aukaafurðir: gellur, sundmagi o.fl.

Fleiri botnfisktegundir

Allar afurðir →

Ýsa

Melanogrammus aeglefinus

Ufsi

Pollachius virens