11.4°CWNW · 2.6 m/s

Afurðir / Botnfiskur

Karfi

Redfish · Sebastes marinus

Karfinn hrygnir að mestu við suðvesturströnd Íslands. Það er því stutt á karfamiðin frá Vestmannaeyjum en útbreiðslusvæði hans hefur þó stækkað undanfarin ár og teygt sig meira norður á Vestfjarðamið.

Karfategundir við Ísland eru þrjár: gullkarfi, djúpkarfi og litli karfi.

Vinnslustöðin veiðir og vinnur bæði gullkarfa og djúpkarfa. Við seljum hann ferskan og frosinn, aðallega til Þýskalands og Frakklands.

Vinnslustöðin er með stóra hlutdeild í útgefnum karfakvóta og því er karfi afar mikilvæg tegund fyrir félagið. Gæði hans skipta miklu máli við veiði, meðhöndlun um borð sem og í vinnslu.

Veiðistaður og veiðitímabil

Veiðistaður og veiðitímabil

Karfaafurðir

  • Fersk flök með beini og roði eða roðlaus með beini
  • Ferskur heill fiskur, ísaður

Fleiri botnfisktegundir

Allar afurðir →

Ýsa

Melanogrammus aeglefinus

Ufsi

Pollachius virens