Hver ber ábyrgð
Vinnslustöðin hf., kt. 700269-3299, Hafnargata 2, 900 Vestmannaeyjum, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á vsv.is. Hér segir hvað gerist þegar þú heimsækir vefinn. Almenna persónuverndarstefnu VSV, sem nær yfir starfsfólk, viðskiptavini og birgja, finnur þú hér (PDF) og aðrar stefnur félagsins undir Stjórnarhættir og skjöl. Fyrirspurnir sendist á abendingar@vsv.is eða í síma 488 8000.
Engar vafrakökur
vsv.is notar engar vafrakökur til greininga eða markaðssetningar. Þess vegna er enginn kökuborði á vefnum. Eina kakan er hjá starfsfólki VSV sem skráir sig inn í vefumsjónina. Hún heldur innskráningunni virkri og hverfur við útskráningu.
Heimsóknatölfræði
Við teljum heimsóknir með Vercel Web Analytics: hvaða síður eru skoðaðar, frá hvaða landi, á hvers konar tæki og vafra og hvaðan gestir koma. Tólið notar engar kökur, geymir ekki IP-tölur og getur ekki fylgt gestum milli daga eða milli vefja. Við sjáum aðeins samtölur.
Hýsing
Vefurinn er hýstur hjá Vercel Inc. Eins og allir vefþjónar skráir Vercel tæknilegar upplýsingar um hverja beiðni, til dæmis IP-tölu og tíma, til að halda vefnum gangandi og verjast misnotkun. Þær upplýsingar eru geymdar í mesta lagi 30 daga og ekki notaðar í öðrum tilgangi. Vercel er bandarískt fyrirtæki með vottun samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework). Fréttir og myndir vefsins eru geymdar hjá Supabase í gagnaveri í París.
Myndbönd
Sum myndbönd í fréttum eru af YouTube. Ekkert er sótt frá YouTube fyrr en þú smellir á spila. Þá opnast spilari YouTube í persónuverndarham (youtube-nocookie.com) og um hann gildir persónuverndarstefna Google.
Starfsmannaskrá
Á vefnum birtast nöfn, starfsheiti, vinnusímar, vinnunetföng og myndir af hluta starfsfólks svo viðskiptavinir nái í rétta manneskju. Starfsfólk sem vill breyta sínum upplýsingum eða láta fjarlægja mynd hefur samband við mannauðsstjóra VSV.
Tölvupóstur
Vefurinn er ekki með eyðublöð. Tölvupóstur sem þú sendir á netföng sem birtast á vefnum fer í póstkerfi VSV og er meðhöndlaður eins og annar póstur til fyrirtækisins.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar VSV geymir um þig og að fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Hafðu samband á abendingar@vsv.is. Við biðjum um staðfestingu á því hver þú ert og svörum innan 30 daga. Þú getur líka leitað til Persónuverndar á personuvernd.is.