11.4°CWNW · 2.6 m/s

Störf

VSV er stærsti vinnuveitandi Vestmannaeyja. Um 300 fastráðnir starfsmenn starfa við veiðar, vinnslu, skrifstofu og stjórnun. Það eru um 7% af íbúum eyjarinnar.

Öll laus störf eru auglýst hér á síðunni og í íslenskum miðlum þegar þau losna. Kíktu því við aftur. Engin störf eru laus eins og er.

Við tökum ekki við almennum umsóknum. Umsóknum og ferilskrám sem berast í tölvupósti er hvorki svarað né haldið til haga.

Vinnustaðurinn

Meginstarfsemi Vinnslustöðvarinnar er öflun, framleiðsla og sala sjávarafurða. Félagið leggur ríka áherslu á að hlusta á kröfur kaupenda og reyna að uppfylla þær á sem bestan hátt. Til að ná þeim markmiðum þarf félagið að ráða yfir hæfu, áhugasömu og vel þjálfuðu starfsfólki sem axlar ábyrgð, sýnir frumkvæði í starfi og tekur þannig virkan þátt í þróun fyrirtækisins. Vinnslustöðin vill vera eftirsóknarverður og skemmtilegur vinnustaður þar sem starfsmenn sýna hver öðrum virðingu svo hver og einn geti vaxið og dafnað í starfi.

Samfélagið

Vinnslustöðin er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Sátt og virðing fyrir auðlindum sjávar og nýtingu þeirra er forsenda þess að Vinnslustöðin þrífist og geti gagnast samfélagi sínu hér eftir sem hingað til.