Gerðu sér glaðan dag á sjómannaskemmtun
1/06/25
Það var svo sannarlega góð stemning í bæði Eldheimum og í Höllinni í gærkvöldi. Alls voru 120 manns skráðir til þátttöku í sjómannaskemmtuninni, frá öllum sex skipum VSV.
Útgerðin bauð bæði skipverjum og mökum þeirra til viðburðarins. Fyrir skemmtunina var haldið kokteilboð í Eldheimum, þar sem gestum var boðið upp á veitingar frá Vöruhúsinu og léttar veigar. Að því loknu hélt hópurinn saman í Höllina þar sem sjómannaskemmtunin fór fram.
Veður var frábært og gleðin mikil eins og meðfylgjandi myndir bera með sér sem teknar voru í Eldheimum í gær.








