Fara á efnissvæði
World Map Background Image
IMG 6505 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Árshátíð Vinnslustöðvarinnar fer fram í Höllinni þann 11. október næstkomandi og undirbúningurinn gengur vel. Helena Björk Þorsteinsdóttir, sem hefur veg og vanda að skipulagningu hátíðarinnar, segir að starfsfólk sé spennt fyrir kvöldinu og að stemningin sé góð.

Spennandi og krefjandi verkefni

„Við erum orðin nokkuð sjóuð í þessu og þekkjum tímalínuna á þeim verkum sem við þurfum að klára. Þetta er allt að smella hjá okkur,“ segir Helena. Hún bætir við að það sé alltaf bæði spennandi og krefjandi að skipuleggja svona stóran viðburð. „Maður vill reyna að gera eins vel og maður getur og að það sem boðið er upp á höfði til sem flestra. Við erum heppin með allt þetta frábæra fólk sem gerir þessa árshátíð að veruleika með okkur.“

Í ár verða nokkrar nýjungar á dagskránni. „Aðalrétturinn verður ekki borinn á borð heldur verður steikarhlaðborð ala Einsi Kaldi. Við byrjuðum líka í fyrra með fordrykk upp á Háalofti fyrir alla gesti og það heppnaðist svo vel að við ætlum að endurtaka það núna,“ segir hún.

IMG 6591

Frá árshátíðinni í fyrra.

Starfsfólkið taki gleði og samveru með sér heim eftir kvöldið

Skemmtikraftarnir Sveppi og Pétur munu stýra veisluhöldunum og tónlistaratriðin eru í höndum Jónsa, Dags og Unu Eyjakonu, auk Eyjapeyjanna í Gosum sem spila undir dansleik. „Það sem hefur verið mest stressandi þau ár sem ég hef komið að skipulagningu er hvert Herjólfur siglir, því það þarf jú að koma skemmtikröftunum til Eyja og þau eru stór partur í að kvöldið verði sem skemmtilegast. En sem betur fer hefur það alltaf bjargast,“ segir Helena.

Aðspurð hvað geri árshátíð Vinnslustöðvarinnar sérstaka segir Helena: „Fyrir mína parta er það samveran með öllum. Vinnslustöðin er stór vinnustaður með þó nokkrar starfsstöðvar. Þetta kvöld gefst öllum tækifæri á að hittast og eiga gott kvöld saman.“

Helena vonast til að starfsfólkið taki gleði og samveru með sér heim eftir kvöldið. „Ég vona að allir geti átt gott kvöld og að gleðin verði við völd.“

IMG 6686

Kátt í Höllinni. Myndirnar eru teknar á árshátíðinni 2024