Fara á efnissvæði
World Map Background Image
DJI 20260208110010 0006 D Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Fyrsta loðna ársins hefur borist Vinnslustöðinni og er vinnsla komin á fullt. Veiðarnar hafa farið vel af stað og lofa fyrstu farmar vertíðarinnar góðu, að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs.

„Gullberg fór út á föstudagskvöld og var komið á miðin á laugardag. Við hófum vinnslu strax á sunnudagsmorgun,“ segir Sindri.

Huginn var á veiðum á sunnudag og mánudag og kom til Vestmannaeyja í gærkvöldi, þar sem þegar var hafist handa við vinnslu aflans.

Bræla var á miðunum í dag, en reiknað er með að Gullberg haldi aftur til veiða í kvöld. Í gær voru skipin við veiðar vestan við Ingólfshöfða.

Fyrstu dagarnir gefa að sögn Sindra góð fyrirheit. „Allt er komið á fullt í vinnslunni, gæðin á loðnunni eru góð, hrognafylling er um 13% og loðnan nánast átulaus.“

Stutt myndband frá undirbúningi vertíðarinnar má sjá hér að neðan.