Fara á efnissvæði
World Map Background Image
DSC 9998 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Skip Vinnslustöðvarinnar komu til hafnar í gærkvöldi með restina af afla úr síðustu loðnutúrum vertíðarinnar og þar með er loðnuveiðum fyrirtækisins á þessari vertíð lokið. Alls veiddu skip fyrirtækisins tæplega 18 þúsund tonn af loðnu.

Að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni, hefur vertíðin gengið afar vel.

„Við erum búin að veiða þau tæpu 18.000 tonn sem við höfðum til ráðstöfunar og vertíðin hefur gengið mjög vel. Við munum ná að framleiða allt sem við ætluðum, bæði í heilfrystingu og hrognum,“ segir Sindri.

Að hans sögn er það sérstaklega ánægjulegt í ljósi stöðunnar á mörkuðum, þar sem hráefni til hrygnumarkaðar hefur verið af skornum skammti undanfarin ár.

„Það skiptir miklu máli að geta þjónustað hrygnumarkaðinn sem hefur vantað hráefni eftir mögur síðustu ár,“ segir hann.

Sindri segir jafnframt ánægjulegt að sjá merki um að loðna sé víða á ferðinni.

„Það er jákvætt að sjá að loðnan virðist vera víða og vonandi skilar það sér í góðri hrygningu.“

Næsta verkefni er að styrkja markaðinn sem hefur dregist saman á síðustu árum.

„Nú er verkefnið hjá okkur og kaupendum okkar að byggja aftur upp markaðinn,“ segir Sindri og vísar þar meðal annars til viðtals við Yukika Ono sem birtist nýlega hjá Eyjafréttum.

DSC 9974

Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar við vinnslu loðnuhrogna.

Góður lokasprettur hjá Gullberginu

Gullbergið kom til hafnar í gærkvöldi með síðasta loðnuaflann á vertíðinni, rétt fyrir afmælisdag skipstjórans, Jóns Atla Gunnarssonar.

Að sögn Jóns Atla gekk síðasti túr vertíðarinnar vel þrátt fyrir að leitin hafi tekið tíma.

„Við leituðum fyrst við Eyjar en náðum ekki að kasta þar. Síðan fórum við vestur undir Reykjanes og áfram á Garðskaga þar sem var eitthvað að sjá. Að lokum fengum við gott kast við Malarrif, suður af Snæfellsnesi, þar sem við tókum um 800 tonn, svo nokkur minni köst og enduðum á um 600 tonnum í gærmorgun,“ segir Jón Atli.

Hann segir greinilegt að vestanganga loðnu hafi verið á ferðinni að undanförnu.

„Það komu tvær göngur með Suðurlandinu og sú seinni var stærri, sem er frekar óvenjulegt. Einnig kom ganga að vestan. Það hefur verið mikið af loðnu og meira en maður hefur séð í langan tíma.“

Að sögn Jóns Atla fylgjast skipverjar vel með þroska loðnunnar á vertíðinni.

„Við tökum reglulega sýni þar sem við vigtum hlutfall hængs og hrygnu og metum jafnframt hrognaþroskann. Þessar upplýsingar eru sendar beint í land til að upplýsa vinnsluna um hvert kast fyrir sig,“ segir hann.

Hann segir það gefa tilefni til bjartsýni að sjá hversu mikið magn er af loðnu á miðunum.

„Það eru klárlega góðar horfur fyrir næstu þrjú til fjögur árin miðað við það sem við höfum séð.“

20260310 204009

Gullbergið kom til hafnar í gærkvöldi með síðasta loðnuaflann á vertíðinni.

Mikil spenna í kringum loðnuveiðar

Stemningin um borð í Gullberginu hefur að sögn Jóns Atla verið góð á vertíðinni.

„Það er alltaf mikil spenna í kringum þessar veiðar. Veðrið spilar stórt hlutverk og við erum oft að fikra okkur áfram. Svo þarf líka að passa vel upp á veiðarfærin, því stundum er loðnan svo þétt að menn rífa næturnar.“

Hann segir dæmi um slíkt hafa sést í Breiðafirði á vertíðinni.

„Þar var torfan svo þétt að það var alveg svakalegt að sjá. Þetta er toppurinn á veiðunum og menn bera sig líka saman á milli skipa. Og þegar menn sjá til lands þá léttir oft aðeins á mönnum.“

Huginn

Huginn á miðunum.

Floti

Flotinn á loðnumiðunum.

DSC 0013

Góð stemning á vaktinni.

DSC 0004

Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar hefur staðið vaktina undanfarnar vikur.