Fara á efnissvæði
World Map Background Image
3E0ac01a 3D50 4D24 A136 0A4870617fe8 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar hafa undanfarna daga tekið þátt í Seafood Expo North America í Boston, stærstu sjávarútvegssýningu Norður-Ameríku, sem fram fór dagana 15.–17. mars í Thomas M. Menino Convention & Exhibition Center.

Á sýningunni koma saman þúsundir kaupenda, birgja og sérfræðinga víðs vegar að úr heiminum. Í ár spannar viðburðurinn um 20.000 fermetra sýningarrými og taka þar þátt 1.215 sýnendur frá 50 löndum, sem undirstrikar alþjóðlegt vægi hennar.

Umframeftirspurn

Vinnslustöðin var á staðnum til að kynna starfsemi sína, hitta lykilviðskiptavini og efla tengsl við samstarfsaðila. Sýningin er mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi til að miðla nýjungum, fylgjast með þróun í greininni og skapa ný tækifæri á markaði. Með þátttöku sinni styrkir Vinnslustöðin stöðu sína á alþjóðamarkaði og heldur áfram að byggja upp öflugt tengslanet.

Mikil eftirspurn er eftir fiskafurðum vestanhafs og í raun má segja að skortur sé á mörgum helstu afurðaflokkum. Albert Erluson, framkvæmdastjóri Hólmaskers, segir að umframeftirspurn sé í frystum ýsuafurðum, sem fyrirtækið framleiðir, og enn meiri í þorskafurðum.

Mikilvægt að halda vel utan um kaupendur

Susan Young, framkvæmdastjóri VSV America, tekur í sama streng og segir að fyrirspurnir berist vikulega umfram það sem hægt sé að verða við.

„Það er gott að vel gangi að selja en þó er óhætt að segja að full mikil spenna sé í markaðnum. Það er mikilvægt að halda vel utan um kaupendur í svona ástandi, afkoma viðskiptavina er undirstaða okkar eigin afkomu,“ segir Susan.

Susan Young og Albert Erluson í VSV-básnum.