Suðurklefinn í gagnið í ágúst
31/07/17
Kapp er lagt á að taka suðurklefa nýrrar frystigeymslu Vinnslustöðvarinnar á Eiði í gagnið í ágúst.
Lokið var við að steypa gólfin í norðurklefanum núna fyrir helgi.
Í suðurklefanum er byrjað að setja upp færanlega rekka. Uppsetningin er mikið fyrirtæki og tekur nokkrar vikur.
Nýju frystirýmin í norður- og suðurhluta byggingarinnar verða alveg aðskilin.

Rekkauppsetning í suðurklefa. Mynd: Addi í London.

Rennt í gólfið í norðurklefa frystigeymslunnar. Myndir: Addi í London.
