Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Adalfundur VSV 2025 IMG 7660 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf. fyrir árið 2024 var haldinn í húsakynnum félagsins í gær.

Helstu tölur félagsins eru eftirfarandi:

o   Velta samstæðunnar var 177 milljónir evra, eða jafnvirði liðlega 26 milljarða króna.

o   Tap félagsins var 3,5 milljónir evra eða jafnvirði 500 milljóna króna.

o   Bókfærðar heildareignir félagsins námu 422 milljónum evra, eða jafngildi 61 milljarðs króna.  Þar af voru heildarskuldir og skuldbindingar félagsins tæpir 44 milljarðar króna.

Er þetta í annað skipti á síðustu 25 árum sem félagið er rekið með tapi.

Milljarða endurbygging

Stærsti áhrifaþáttur taprekstrar í fyrra var loðnubrestur.  Því miður varð raunin sú aftur í ár.  Það er mikið áhyggjuefni fyrir félagið, og um leið allt samfélagið, hve lítið er vitað um loðnu, hegðun hennar og samspil vistkerfis hafsins.

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum, aðallega í nýbyggingu botnfiskvinnslu,  jukust verulega eða um 19,4 milljónir evra, jafnvirði 2,9 milljarða króna. Samþykkt var að ekki yrði greiddur arður til hluthafa í ár.

Stjórn félagsins var endurkjörin. Hana skipa: Einar Þór Sverrisson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Rut Haraldsdóttir, Sigurhanna Friðþórsdóttir og Sigurjón Rúnar Rafnsson. Varamenn eru: Eyjólfur Guðjónsson, Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir og Herdís Ásu Sæmundardóttir.

GOG IMG 7667

Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar

Áformum um nýsmíðar slegið á frest vegna stefnu stjórnvalda

Fram kom í ræðu Guðmundar Arnar Gunnarssonar, stjórnarformanns, að verði boðaðar hækkanir á veiðigjöldum að veruleika muni Vinnslustöðin ekki geta fjárfest eins og gert hafi verið á undanförnum árum.

„Tími er kominn til að endurnýja verulega skipakost félagsins og liggja fyrir teikningar af nýjum þriggja og fjögurra mílna bátum. Smíði 3ja mílna togbáta hafði verið boðin út og verðtilboð höfðu borist. Skipin voru hönnuð með sama hætti og Breki, með stórri og hæggengri skrúfu sem myndi minnka kolefnisspor útgerðar okkar til muna.  Stefnt var að því að semja um smíði skipanna á haustdögum, eða í kjölfar þess að við sæjum fram á loðnukvóta á næsta ári. Þessum áformum hefur nú verið slegið á frest vegna stefnu stjórnvalda um að liðlega tvöfalda veiðigjöld.” sagði Guðmundur Örn.

Í lok fundar fór Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri, yfir áhrif veiðigjalda á fyrirtækið. Nánar verður fjallað um þá yfirferð á næstu dögum á fréttasíðu Vinnslustöðvarinnar – vsv.is.

SBK Adalf IMG 7677

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.