Fara á efnissvæði
World Map Background Image
3 K94A3569 (1) Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Vinnslustöðin lauk um helgina vinnslu úr síðustu löndunum af norsk-íslenskri síld og hefur þar með formlega lokað þeirri vertíð.

„Við kláruðum að vinna restina af NÍ-síldinni um helgina,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.

Hann segir að nú sé​u​ teknar við kolmunnaveiðar og ​eru skipin farin til veiða. „Bátarnir eru á kolmunna núna, og við reiknum með að taka einn til tvo túra á skip,“ segir Sindri.​ Að kolmunnaveiðunum loknum tekur Íslandssíldin við, en gert er ráð fyrir að sú veiði standi fram í janúar.

„Það hefur gengið vel að undanförnu, bæði í veiðum og vinnslu, og við förum bjartsýn inn í næsta verkefni,“ bætir Sindri við.

Myndbandið hér að neðan var tekið um síðustu helgi þegar ​Huginn VE landaði og síldarvinnslan stóð ​s​em hæst.