Fara á efnissvæði
World Map Background Image
IMG 7791 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Breki VE kom til Vestmannaeyja að morgni 21. október eftir rúmlega þriggja vikna leiðangur í haustralli Hafrannsóknastofnunar. Teknar voru 179 rannsóknastöðvar á grunnslóð hringinn í kringum landið. Magnús Ríkarðsson skipstjóri segir leiðangurinn hafa gengið mjög vel þótt ofsaveður hafi sett svip sinn á síðari hluta hans.

Breki hélt frá Eyjum að kvöldi 29. september. Að sögn Klemens Sigurðssonar, útgerðarstjóra Vinnslustöðvarinnar, hófust rannsóknir vestan Vestmannaeyja og var þaðan haldið hringinn í kringum landið. Breki sá um rannsóknir á grunnslóð en rannsóknaskipið Árni Friðriksson annaðist rannsóknir á djúpslóð. Í haustrallinu í heild eru teknar rúmlega 370 rannsóknastöðvar.

Unnið við veiðarfærin um borð í Breka. Önnur veiðarfæri eru notuð í haustrallinu en við hefðbundnar veiðar og því þarf að skipta þeim út fyrir leiðangurinn og aftur að honum loknum.

Ofsaveður við Langanes

„Þetta gekk mjög vel. Veðrið var reyndar að trufla okkur,“ segir Magnús.

Þegar Breki var við Langanes gekk yfir lægð sem fylgdi ofsaveður af norðvestri. Síðan gafst tveggja daga hlé áður en suðvestanstormur tók við. Veðrið gerði síðari hluta leiðangursins bæði erfiðari og tímafrekari.

Þar sem Breki sinnti grunnslóðinni var hægt að laga yfirferðina að veðrinu og halda sig nær landi þegar aðstæður kölluðu á. Það þýddi þó að fara þurfti lengri siglingaleiðir en ella.

„Það urðu 3.700 sjómílur í túrnum, eins og við hefðum siglt til Tenerife og til baka,“ segir Magnús.

Loftvogin um borð í Breka sýndi óvenjulágan loftþrýsting í lægðarmiðjunni, um 933 millibör að sögn Magnúsar skipstjóra.

Mælt og skráð á 179 stöðvum

Á hverri rannsóknastöð var togað þrjár sjómílur eftir fyrirfram ákveðinni línu.

„Aflinn á hverri stöð er kláraður á meðan siglt er á þá næstu,“ útskýrir Magnús.

Fimm starfsmenn Hafrannsóknastofnunar voru með í leiðangrinum og sinntu umfangsmiklum mælingum á aflanum. Jafnframt var allt skráð í brúnni.

Á meðan á leiðangrinum stóð var landað fjórum sinnum: á Ísafirði, Dalvík, Eskifirði og loks í Vestmannaeyjum.

Að lokum vill Magnús koma á framfæri þökkum til starfsmanna Hafrannsóknastofnunar sem komu að rannsóknunum fyrir frábært samstarf.

Björgunaræfing var um borð í Breka í leiðangrinum.