Gleðilegan sjómannadag – takk fyrir farsæla vertíð
6/06/26
Kæru sjómenn
Um leið og við, stjórnendur Vinnslustöðvarinnar, óskum ykkur gleðilegs sjómannadags viljum við þakka ykkur fyrir vel unnin störf á nýliðinni vetrarvertíð.
Vertíðin var einkar gjöful. Sérstaklega var ánægjulegt hversu vel tókst til með loðnuvertíðina. Gæði loðnunnar voru frábær, bæði frá náttúrunnar hendi og vegna vandaðrar meðhöndlunar á sjó og í landi.
Nú, fyrir nokkrum dögum, hófst vinnsla loðnunnar í Asíu og verður hún komin í verslanir í júlí. Með vertíðinni tókst okkur að bjarga verðmætum markaði loðnuafurða þar.
Þá má ekki gleyma hinni hefðbundnu vetrarvertíð hjá troll- og netabátum. Framan af einkenndist hún af góðu veðri, en síðari hluta mars tóku brælur völdin sem stóðu fram í apríl.