Fara á efnissvæði
World Map Background Image
623B431d 76Ce 43Fa A0a6 F398b3f937ff Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Það var líf og fjör um borð í Gullbergi í morgun þegar hópur barna af leikskólanum Kirkjugerði kom í heimsókn til að skoða skipið og fræðast um lífið á sjó.

Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri og áhöfnin tóku vel á móti gestunum ungu sem fengu að ganga um skipið, skoða búnaðinn og kynnast því hvernig daglegt starf sjómanna fer fram. Heimsóknin vakti mikla lukku hjá krökkunum sem sýndu skipinu og störfunum um borð mikinn áhuga.

Slíkar heimsóknir eru skemmtileg leið til að kynna yngstu kynslóðinni mikilvægt starf sjómanna og starfsemina sem tengist sjávarútvegi.

Sjá má myndir frá heimsókninni í albúminu hér að neðan.