Fara á efnissvæði
World Map Background Image
24 09 05 Matey 0746 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Sjávarréttahátíðin Matey hefur á undanförnum árum skapað sér sérstakan sess í menningarlífi Vestmannaeyja og orðið vettvangur þar sem matur, fólk og upplifun mætast. Hátíðin er jafnframt gott dæmi um hvað verður til þegar fyrirtæki, einstaklingar og samfélagið vinna saman að sameiginlegu markmiði.

Vinnslustöðin er meðal styrktaraðila Matey og leggur jafnframt til hráefni sem nýtist í fjölbreyttum matargerðarviðburðum hátíðarinnar. Góð hráefni eru grunnur að góðri upplifun og þar skiptir samstarf við sjávarútveginn miklu máli.

24 09 06 Matey 1147

Veislan undirbúin. Myndin er tekin á Matey 2024. Ljósmyndir: Matey/Karl Petersson

Humar á boðstólnum í fyrsta sinn

Að þessu sinni verður í boði humar frá Vinnslustöðinni, í fyrsta sinn frá upphafi Mateyjar. Humarinn er afli úr könnunarveiðum sem fóru fram nú í byrjun maí. Eins og kunnugt er hefur verið humarveiðibann, vegna lítillar nýliðunar síðan 2021. Nú eru sterkar vísbendingar um bata humarstofnsins og er það mikið fagnaðarefni.

Í Vinnslustöðinni er lögð áhersla á að styðja verkefni sem efla samfélagið, skapa verðmæti og draga fram það besta sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða.

Humar2

Hágæða humar frá Vinnslustöðinni verður í fyrsta sinn hluti af upplifuninni á Matey í ár.

Tengir saman fólk og staðbundin verðmæti

Matey hefur frá upphafi byggt á þeirri hugsun að tengja saman staðbundin verðmæti, matarmenningu og þá fjölmörgu aðila sem koma að því að skapa einstaka upplifun fyrir gesti. Á hátíðinni gefst tækifæri til að njóta fjölbreyttrar dagskrár, kynnast skapandi matargerð og upplifa þá stemningu sem einkennir Vestmannaeyjar.

Það er því vel við hæfi að hvetja bæði Eyjamenn og gesti til að tryggja sér sæti og taka þátt í hátíðinni.

Hátíðin verður haldin næstkomandi föstudag og laugardag og er mælt með að áhugasamir panti borð tímanlega og taki þátt í Matey – þar sem bragð, upplifun og samfélag mætast.

Nánari upplýsingar og borðapantanir eru á vefsíðu hátíðarinnar.

24 09 05 Matey 0489

Hátíðin hefur vakiðathygli út fyrir landsteinana. Hér er hópur á síðustu hátíð í vettvangsferð í Vinnslustöðinni.

24 09 06 Matey 1712

Hátíðin hefur notið mikilla vinsælda enda lögð rík áhersla á gæði, upplifun og gott hráefni.

24 09 06 Matey 1692

Matey dregur ár hvert að sér fjölda gesta þar sem gæði hráefnis, þjónusta og einstök eyjastemning fara saman.