Fara á efnissvæði
World Map Background Image
709A83341 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Veiðum Vinnslustöðvarinnar á norsk-íslenskri síld fer að ljúka en alls hefur verið landað um 11.000 tonnum. Um 1.200 tonn eru eftir af kvóta félagsins. Vertíðin hófst 11. september þegar Gullberg VE 292 landaði um 370 tonnum.

Farið var hægt af stað fyrstu vikurnar á meðan nýtt uppsjávarhús var tekið í notkun og búnaður stilltur. Nýja húsið og endurbætur á uppsjávarvinnslunni hafa reynst vel.

Gangur veiðanna hefur verið misjafn, einkum vegna veðurs, og suma daga hefur botninn alveg dottið úr þeim. Síldin hefur þó að mestu leyti verið góð og stór hluti aflans farið til frystingar.

Í næstu viku verður farið að huga að veiðum á íslenskri sumargotssíld. Búist er við að þær veiðar verði fyrir vestan land, en Vinnslustöðin á rúmlega 6.000 tonn eftir af þeim kvóta.

Við síldarvinnslu hjá Vinnslustöðinni. Stór hluti aflans á vertíðinni hefur farið til frystingar.

Síldarflök á leið til frystingar í uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar.