Fara á efnissvæði
World Map Background Image
4 DJI 20261102125601 0004 D Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Þótt nýr sæstrengur sé kominn til Vestmannaeyja gengur fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar fyrir olíu. Ástæðan er raforkuverðið, segir Unnar Hólm Ólafsson verksmiðjustjóri. Olían sé umtalsvert ódýrari en rafmagnið og verksmiðjan brenni nú 18 til 25 þúsund lítrum á sólarhring þegar vinnsla stendur yfir.

„Olían er mjög há þessa dagana en samt er hún umtalsvert ódýrari heldur en rafmagn fyrir verksmiðjuna,“ segir Unnar í myndbandsviðtali við Halldór B. Halldórsson.

Að sögn Unnars hefur rafmagn ekki verið nýtt til orkuframleiðslu verksmiðjunnar frá því að nýi sæstrengurinn kom til Eyja fyrr á árinu. Hann vonast til að aðstæður breytist en sér ekki merki um það eins og staðan er nú.

Síldarvinnsla fram í lok nóvember

Vinnsla á síld hófst í september og hefur gengið ágætlega. Gert er ráð fyrir að hún standi fram í lok nóvember. Verksmiðjan tekur við afskurði frá síldarvinnslunni og fylgir því takti hennar.

Að jafnaði er unnið í tveimur skorpum í viku, í upphafi vikunnar og undir lok hennar. Hver vinnslulota tekur yfirleitt einn til einn og hálfan sólarhring.

Unnar segir góðan anda ríkja á vinnustaðnum. „Það er alltaf góð stemning í bræðslunni. Það er góður mannskapur hérna.“

Tíu ár við stjórnvölinn

Unnar kom til starfa hjá Vinnslustöðinni árið 2015 og vann fyrst með Sigga Friðbjörð, sem þá var farinn að huga að starfslokum. Hann tók við verksmiðjustjórn árið 2016 og hefur því gegnt starfinu í tíu ár.

Fjölbreytnin er það sem honum finnst einna áhugaverðast við starfið. Verkefnin spanna allt frá starfsmannamálum til tækjabúnaðar og skipulags vinnslunnar.

„Það er ótrúlega margt sem kemur til á hverjum degi,“ segir Unnar og bætir við að dagarnir geti verið óútreiknanlegir.

Kertið fer á strompinn

Í viðtalinu ber einnig á góma jólaskreytinguna á strompi verksmiðjunnar, sem er frá árinu 1925. Unnar segir elstu menn telja að strompurinn hafi verið skreyttur frá árinu 1973, þótt hann geti ekki sjálfur staðfest það.

Hitt er víst að hefðinni verður haldið við þessi jól. „Við setjum klárlega kerti á hann.“

Horfðu á viðtal Halldórs B. við Unnar Hólm Ólafsson hér að neðan.