Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Whatsapp Image 2026 10 30 At 03.00.09 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar hittu kaupendur og kynntu afurðir fyrirtækisins á sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo í Qingdao í Kína í vikunni. Horfur fyrir komandi loðnuvertíð voru ofarlega á baugi, en einnig gafst tækifæri til að ræða stöðu markaða og ný viðskiptatækifæri.

Vinnslustöðin var með bás á sýningunni líkt og undanfarin ár. Hún er haldin árlega í Qingdao og er ein stærsta sýning sinnar tegundar í heiminum.

Fulltrúar VSV á sýningunni voru Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi, Yohei Kitayama, sölustjóri í Japan, og Hiroki Igarashi, sem starfar við sölu- og markaðsmál hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.

Whatsapp Image 2026 10 30 At 03.00.08 (1)

Yohei Kitayama, sölustjóri VSV í Japan, og Hiroki Igarashi, sem starfar við sölu- og markaðsmál hjá Vinnslustöðinni.

Lykilmarkaðir fyrir uppsjávarafurðir

Sverrir segir sýninguna hafa gengið vel og fjölda gesta hafa lagt leið sína á bás VSV.

„Megináherslan hjá okkur á þessari sýningu er á afurðir fyrir Kína, Japan og aðra markaði í Asíu. Þar fer mest fyrir uppsjávarfiski, loðnu, makríl og síld. Í Asíu eru lykilmarkaðir okkar fyrir þessar tegundir og því er mikilvægt að sinna þeim vel, meðal annars með þátttöku í sýningu sem þessari,“ segir Sverrir.

Hann segir sýninguna bæði vettvang til að rækta núverandi viðskiptasambönd og stofna til nýrra.

„Við hittum núverandi kaupendur og ræðum við marga sem hafa áhuga á viðskiptum og eru að leita að ákveðnum vörum. Við hittum líka aðra úr greininni, bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Utanríkisráðherra heimsótti okkur á fyrsta degi sýningarinnar ásamt föruneyti sínu. Það var ánægjulegt að hitta hana og fá tækifæri til að kynna starfsemina.“

Fjölbreyttir markaðir og vaxtartækifæri

Þótt uppsjávarafurðir séu í forgrunni segir Sverrir einnig vera tækifæri fyrir aðrar afurðir á mörkuðum í Asíu.

„Í botnfiskvinnslunni framleiðum við ýmsar aukaafurðir sem fara til kaupenda í Kína. Áður seldum við líka talsvert af frystri grálúðu og karfa til Japans og Kína, en við höfum ekki verið í þeirri framleiðslu undanfarin ár.“

Hann segir fjölbreytni í neyslu fiskafurða í Asíu skapa möguleika til framtíðar.

„Neysla fiskafurða í Asíu er bæði fjölbreytt og vaxandi. Þar eru mikil framtíðartækifæri til viðbótar við þau viðskipti sem við höfum nú þegar.“

Whatsapp Image 2026 10 30 At 03.03.24

Beint samtal við kaupendur skiptir máli

Hiroki Igarashi segir mikilvægt að geta hitt kaupendur í eigin persónu, þótt dagleg samskipti fari að miklu leyti fram úr fjarlægð.

„Í starfi mínu í Vestmannaeyjum er ég tengiliður framleiðslu og sölu og í daglegum samskiptum við kaupendur. Landfræðilega er fjarlægðin þó mikil. Þess vegna er mikilvægt að hittast augliti til auglitis, fá upplýsingar beint frá kaupendum og betri tilfinningu fyrir því sem er að gerast á mörkuðum,“ segir Hiroki.

„Á svona sýningu getum við hitt marga á einum stað sem annars væri erfitt að ná til í einni ferð. Við förum heim til Vestmannaeyja með mikið af gagnlegum upplýsingum.“

Loðnuvertíðin mikið til umræðu

Yohei Kitayama, sem er með aðsetur í Tókýó, segir mikla eftirvæntingu meðal kaupenda eftir komandi loðnuvertíð.

„Það hefur fátt verið meira rætt á sýningunni en horfurnar fyrir komandi loðnuvertíð,“ segir Yohei.

Hann segir lækkun ráðlagðs aflamarks í kjölfar mælinga í október hafa valdið kaupendum vonbrigðum. Vonir standi þó til að frekari mælingar í vetur geti leitt til aukins kvóta.

„Það voru mikil vonbrigði að ráðgjöf um loðnuveiðar skyldi lækka svo mikið í október. Vegna óhagstæðra aðstæðna náðist þó ekki að mæla allt útbreiðslusvæði stofnsins og Hafrannsóknastofnun telur því að stærð hans sé vanmetin. Enn er von um aukinn kvóta ef mælingar í vetur gefa tilefni til þess. Þessar sveiflur í ráðgjöfinni valda miklum óróa á mörkuðum og því er mikilvægt að skýra stöðuna vel fyrir kaupendum.“

Whatsapp Image 2026 10 30 At 03.13.28

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra kynnti sér starfsemi Vinnslustöðvarinnar á sýningunni.

Hægari gangur á kínverska markaðnum

Að sögn Yoheis hefur hægt á kínverska markaðnum eftir mikinn vöxt undanfarinna ára. Þess hafi meðal annars gætt í aðsókn kínverskra kaupenda á sýninguna.

„Við finnum fyrir minni kaupgetu fyrirtækja í Kína og minni eftirspurn. Kínverskum kaupendum á sýningunni hefur líka fækkað,“ segir Yohei.

Hann telur skýringuna helst liggja í efnahagsþróuninni, en hátt verð á fiskafurðum hafi einnig áhrif.

„Kaupendur kvarta yfir háu verði og lélegri afkomu. Fiskafurðir hafa hækkað mikið í verði um allan heim og það virðist koma sérlega illa við kaupendur í Kína.“

Whatsapp Image 2026 10 30 At 02.58.21

Vaxandi áhugi á fiski í dýrafóður

Yohei segir jafnframt eftirtektarvert hversu mikil eftirspurn sé orðin eftir fiski í fóður fyrir gæludýr og dýr í dýragörðum.

„Við fáum sífellt fleiri fyrirspurnir um slíkar afurðir, ekki aðeins frá Asíu heldur víða að úr heiminum,“ segir hann.

Að sögn Yoheis gera kaupendur á þessum markaði miklar kröfur til afurðanna.

„Áður var litið á dýrafóður sem farveg fyrir afurðir sem ekki þóttu hæfar til manneldis. Nú eru gerðar miklar kröfur til þessara vara. Þetta er áhugaverð þróun sem getur skapað tækifæri.“

Whatsapp Image 2026 10 30 At 03.13.27 (1)

Sverrir ræðir við Þorgerði Katrínu.

Whatsapp Image 2026 10 30 At 03.03.21