VSV – Portúgal, dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, kaupir ESBAL og styrkir stöðu sína á Portúgalsmarkaði
VSV – Portúgal, dótturfélag Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, hefur gengið frá kaupum á portúgalska fyrirtækinu ESBAL – Empresa de Secagem de Bacalhau, S.A., sem sérhæfir sig í framleiðslu útvatnaðra og frystra saltfiskafurða auk þurrkaðra saltfiskafurða.
Fjárfestingin er enn eitt mikilvægt skref í uppbyggingu Vinnslustöðvarinnar á portúgalska markaðnum, sem er einn stærsti og mikilvægasti markaður heims fyrir saltfiskafurðir.
ESBAL er með starfsemi í Ilhavo, skammt frá Grupeixe, dótturfélagi Vinnslustöðvarinnar í Gafanha da Nazaré. Grupeixe hefur um áratugaskeið sérhæft sig í framleiðslu þurrkaðs saltfisks og hefur verið í eigu Vinnslustöðvarinnar frá árinu 2019.
Samstarf fyrirtækjanna tveggja skapar öfluga heild þar sem framleiðsla og markaðsstarf styðja hvort annað. Með kaupunum á ESBAL styrkir Vinnslustöðin stöðu sína enn frekar í Portúgal og eykur getu sína til að þjónusta bæði neytendur og viðskiptavini með fjölbreyttari vöruframboði.
Nuno Araújo, framkvæmdastjóri Grupeixe, segir kaupin vera eðlilegt framhald af þeirri stefnu sem mörkuð var þegar Vinnslustöðin fjárfesti í Grupeixe fyrir sjö árum.
„Þá sýndi Vinnslustöðin portúgalska saltfiskmarkaðnum mikið traust. Með kaupum á ESBAL tökum við næsta skref og styrkjum enn frekar stöðu okkar á markaðnum,“ segir Nuno.
Hann bendir á að með ESBAL komi Vinnslustöðin inn á ört vaxandi markað fyrir tilbúnar og frystar þorskafurðir sem tilbúnar séu til eldunar.
„Þar með erum við í raun að fullkomna virðiskeðjuna á portúgalska markaðnum – frá fiskimiðum Íslands til matarborðs neytenda, með gæði, nákvæmni og hefð að leiðarljósi,“ segir Nuno.
Að hans sögn eru kaupin afrakstur margra ára samstarfs, gagnkvæms trausts og skýrrar framtíðarsýnar á portúgölskum markaði.
„Grupeixe og ESBAL mynda saman öflugri og heildstæðari fyrirtækjasamstæðu með aukna getu til vaxtar. Við erum tilbúin fyrir næsta kafla, saman.“
Höfuðstöðvar ESBAL í Portúgal.
Á myndinni er Nuno Araújo framkvæmdastjóri Grupeixe (fimmti frá vinstri), ásamt fyrri eigendum ESBAL. Lengst til vinstri eru Agostinho Cunha, sölustjóri og Luísa Melo, framkvæmdastjóri ESBAL. Þau munu starfa áfram hjá fyrirtækinu.