Atvinnuvegaráðherra heimsótti Grupeixe í Portúgal og kynnti sér einstaka stöðu saltfisks á Portúgalsmarkaði
Síðastliðinn föstudag komu atvinnuvegaráðherra og starfsfólk atvinnuvegaráðuneytisins í heimsókn til Grupeixe í Portúgal. Grupeixe er annað af tveimur fyrirtækjum Vinnslustöðvarinnar þar í landi. Ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins voru í nokkurra daga ferð um Portúgal, ásamt mökum og höfðu á leið sinni viðkomu hjá Grupeixe, til að kynna sér starfsemina.
Grupeixe vinnur saltfisk, aðallega frá Íslandi, áfram í hefðbundinn þurrkaðan saltfisk sem seldur er sem fullbúin neytendavara.
Í vor eignaðist Vinnslustöðin einnig fyrirtækið Esbal í Portúgal. Esbal framleiðir útvatnaða, frysta saltfiskbita sem eru tilbúnir til eldunar.
Áhugasamt ráðuneytisfólk
Nuno Araújo er framkvæmdastjóri Grupeixe og jafnframt konsúll Íslands í Portúgal. Nuno og hans fólk tóku vel á móti ráðherra og ráðuneytisfólki. Sverrir Haraldsson frá Vinnslustöðinni var einnig á staðnum og ræddi við gestina. Farið var í gegnum vinnsluhúsið, vinnsluferlar kynntir fyrir gestum og varan skoðuð. Í lokin var boðið upp hressingu á skrifstofunni þar sem tækifæri gafst til að spjalla um það sem fyrir augu hafði borið. Áhugi ráðherra og ráðuneytisfólks leyndi sér ekki og mikið var rætt um saltfiskinn, Portúgal og fleira því tengt.
Einstök vara sem er hluti af menningu Portúgala
Nuno var afar ánægður með heimsóknina og að fá tækifæri til að kynna bæði starfsemi Grupeixe og mikilvægi íslensks þorsks fyrir Portúgal. „Þorskurinn er órjúfanlegur hluti af portúgalskri menningu og matargerð, þótt hann finnist ekki í portúgölskum sjó. Í meira en 400 ár hefur hann verið hluti af sögu okkar, hefðum og daglegu lífi, og er nú eitt sterkasta tákn portúgalskrar matarmenningar. Þorskur í Portúgal er ávallt saltaður vegna þessarar sterku aldagömlu hefðar sem hann tengist.“
Gott orðspor Íslands og sterk tengsl
„Íslenskur þorskur hefur öðlast mjög gott orðspor í Portúgal fyrir gæði, stöðugleika og uppruna. Uppruninn skiptir portúgalska neytendur miklu máli og Ísland er tengt við hágæðaþorsk. Í þessu samhengi er Ísland ekki aðeins hráefnisbirgir heldur er landið hluti af menningarlegri hefð og matargerðarhefð í Portúgal.
Það er einstaklega ánægjulegt að fá þetta tækifæri til að segja frá og sýna hvernig við vinnum með þessa mikilvægu vöru hér í Portúgal. Sérstaklega núna, þegar við fengum til okkar fólk sem starfar að málum sjávarútvegs í íslenska stjórnkerfinu,“ segir Nuno.
Algjör sérstaða íslensks þorsks í Portúgal
Sverrir tekur undir mikilvægi þess að geta kynnt fólki úr stjórnkerfinu starfsemina, vörurnar og markaðinn.
„Þessi heimsókn var afar góð og frábært að fá þetta fólk til okkar. Margt af því hefur vissulega mikla þekkingu á sjávarútvegi en ég held að allir hafi farið frá okkur með aukin skilning á sérstöðu og mikilvægi saltaðs þorsks á Portúgalsmarkaði.
Hér höfum við markað sem metur þorsk frá Íslandi sérstaklega hátt, vegna þess að hann er frá Íslandi. Þá sögu er því miður ekki hægt að segja um allar sjávarafurðir. Við getum tekið sem dæmi síld á mikilvægum mörkuðum, í Póllandi og víðar. Fyrir allnokkrum árum gerði sjónvarpstöðin N4 þætti um uppsjávariðnað á Íslandi og helstu markaði. Í einum þessara þátta voru kaupendur í Póllandi heimsóttir en Pólland er einn mikilvægasti markaðurinn fyrir síldarafurðir. Þar kom skýrt fram að uppruni fiskjarins var ekki tiltekinn á merkingum til neytenda og í raun skipti mestu að varan væri talin pólsk, þar sem fullvinnslan fer fram í Póllandi.“
Ólíkir markaðir fyrir þorsk og ólíkt verðmætamat
„Markaðir fyrir þorsk eru víða og þeir eru líka ólíkir. Á mörgum mörkuðum er þorskur ekki aðgreindur sérstaklega eftir uppruna og jafnvel ekki eftir tegundum. Það er því alveg klárt mál að þorskur er alls ekki einsleit heimsmarkaðsvara.
Það er því gríðarlega mikilvægt að sinna vel markaði eins og þeim sem við höfum hér í Portúgal og nýta sérstöðu okkar á honum. Til að geta gert það er nauðsynlegt að við getum tryggt gæði, magn og afhendingaröryggi sem standast ávallt kröfur markaðarins. Lykillinn að því er samþætt keðja frá veiðum og vinnslu, alla leið til neytenda“, segir Sverrir að lokum.
Góður hádegisverður að lokinni góðri heimsókn
Að heimsókninni lokinni var svo haldið til hádegisverðar þar sem að sjálfsögðu var boðið upp á saltfisk frá Vinnslustöðinni og Grupeixe. Hann mæltist að vonum vel fyrir og reyndir saltfiskunnendur sögðu þetta jafnvel vera besta saltfisk sem þeir hefðu smakkað.