Breki lauk túrnum með mokveiði
23/09/26
Vel gekk hjá Breka VE undir lok síðustu veiðiferðar og fékk áhöfnin meðal annars 11 tonna hol af blálöngu, sem er afar sjaldgæft. Í samtali við vef Vinnslustöðvarinnar segir Magnús Ríkarðsson skipstjóri frá veiðunum, skipinu og lífinu um borð.
Fram undan hjá Breka er haustrall Hafrannsóknastofnunar, en Magnús fer fyrst í stutt frí og ætlar að skella sér á sjávarútvegssýninguna. Sjá má allt viðtalið við Magnús í spilaranum hér að neðan.