Fara á efnissvæði
World Map Background Image
8158 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Bræðsla kolmunna hófst hjá Vinnslustöðinni þann 16. apríl og hefur vinnslan gengið nánast linnulaust síðan, með aðeins stuttum hléum á milli farma. Að sögn Unnars Hólm Ólafssonar, verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðju félagsins hefur gengið vel að bræða.

Alls hafa Huginn og Gullberg landað sex sinnum á tímabilinu og er áætlað að rúmlega 11 þúsund tonn af kolmunna fari í gegnum verksmiðjuna. Stefnt er að því að ljúka bræðslu fyrir næstu helgi.

Unnar segir kolmunnann henta vel til mjölframleiðslu um þessar mundir, þó hann sé fremur magur og því sé lýsisframleiðsla minni en ella.

Framleiðslan byggir nú eingöngu á olíu til gufuframleiðslu, en rafskautaketill verksmiðjunnar er óvirkur. Unnar segir það bagalegt í ljósi þess að nægt framboð sé af rafmagni og flutningsgeta til staðar, en raforkuverð sé ekki samkeppnishæft.

Staða mjölbirgða er góð og eru skemmur að fyllast. Útflutningur er framundan á næstu vikum og jafnframt er sending af loðnulýsi á leið úr landi síðar í vikunni.

Fleiri myndir úr bræðslunni má sjá í albúminu hér að neðan.