Grupeixe og ESBAL á Conxemar – sýningunni í Vigo á Spáni
Á bás sínum tóku fyrirtækin á móti miklum fjölda gesta og kynntu vörur sínar auk annarra afurða frá Vinnslustöðinni og tengdum félögum.
Sverrir Haraldsson frá Vinnslustöðinni var á sýningunni með starfsfólki portúgölsku félaganna. “Aðaláhersla okkar fyrirtækja hér á þessari sýningu er á saltfiskafurðir en einnig er verið að hitta kaupendur annarra afurða í bæði botnfiski og uppsjávarfiski.“
„Það hafa orðið miklar verðhækkanir undanfarna mánuði í flestum afurðaflokkum, samhliða mikilli hækkun hráefnisverðs. Það er okkar von og viðskiptavina að stöðugleiki verði meiri á næstunni en verið hefur. Það er þó ljóst að áfram verður skortum á flestum mörkuðum og og ekki hægt að spá fyrir um þróun afurðaverðs og framleiðslukostnaðar, næstu mánuði, með mikilli vissu.“
Við frá Vinnslustöðinni, Grupeixe og ESBAL erum afar ánægð með sýninguna og básinn sem er hinn glæsilegasti. Það er vel að öllu staðið og á starfsfólk félaganna beggja þakkir skildar fyrir góðan undirbúning og frábært starf á sýningunni.