Hátt í 50 manns við síldarvinnslu á sólarhring
Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs, segir vinnsluna hafa hafist í fyrstu viku september og gerir ráð fyrir að hún standi í um tvær vikur til viðbótar. Þótt hlé hafi orðið vegna veðurs hefur tekist að halda vinnslunni nokkuð samfelldri.
Skipin hafa komið með 700–1.000 tonn í löndun hverju sinni og tekur þrjár til fimm vaktir að vinna úr þeim afla. Á hverri vakt starfa 23–25 manns.
Þegar viðtalið var tekið var öll síldarvinnslan í gangi og þrír afurðaflokkar framleiddir samhliða. Síldin er heilfryst, flökuð og unnin í flapsa.
Aðallega er nú unnin norsk-íslensk síld af miðunum fyrir austan land. Siglingin þaðan til Vestmannaeyja tekur um 20–22 klukkustundir. Að sögn Sindra er stærðin helsti munurinn á norsk-íslenskri síld og íslenskri síld; sú norsk-íslenska sé yfirleitt stærri.
Í meðfylgjandi myndbandsviðtali segir Sindri nánar frá gangi vertíðarinnar og starfseminni í uppsjávarvinnslunni. Hann vonast til að áfram gangi vel það sem eftir lifir síldarvertíðar og eftir góðri loðnuúthlutun á næstu dögum.
Viðtalið við Sindra má sjá í myndbandinu hér að neðan.