Mikil fiskvinnsla hjá Vinnslustöðinni í ágústmánuði
„Það er gott að komast af stað aftur eftir rúmlega mánaðarlangt sumarstopp í fiskvinnslunni. Við byrjuðum strax eftir Þjóðhátíð að pakka saltfiski og fengum svo fisk til vinnslu 7. ágúst. Síðan þá höfum við haft hráefni til vinnslu nánast alla daga.“ Þetta segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri veiða og vinnslu hjá Vinnslustöðinni, aðspurður um upphaf fiskvinnslu, eftir sumarstopp sem hófst í lok júní.
Enginn makríll vegna framkvæmda en aukin saltfiskvinnsla
Eins og áður hefur komið fram, hafa framkvæmdir við uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar tafist og því var ekki unnt að hefja makrílvinnslu í tæka tíð. „Það er mjög slæmt að missa makrílinn út, við höfðum búið okkur undir makrílvertíðina og meðal annars boðað starfsfólk til vinnu vegna hennar. Sem betur fer hefur gengið vel að bæta upp makrílleysið með vinnslu á þorski og ufsa til söltunar.“
Stór ágústmánuður í botnfiskvinnslu
„Þessi líðandi ágústmánuður verður sá stærsti hjá okkur í botnfiskvinnslu í mjög langan tíma. Við áætlum að taka alls um 350 tonn til saltfiskvinnslu í ágúst. Það er um þreföldun miðað við sama mánuð undanfarin ár. Að auki er áætlað að við vinnum rúmlega 100 tonn af hráefni hjá Hólmaskeri í Hafnarfirði, aðallega ýsu, þorsk og ufsa sem fara í frystar afurðir,“ segir Sindri. Hráefnið kemur að stórum hluta af fiskmörkuðum, víðs vegar um landið en einnig er afli farinn að berast af skipum Vinnslustöðvarinnar.
Veiðar skipanna að fara af stað
Botnfiskskip Vinnslustöðvarinnar hafa einnig verið í sumarstoppi en eru nú að hefja veiðar aftur. Sindri segir veiðar fara vel af stað hjá Breka VE.
„Breki fór á veiðar strax eftir Þjóðhátíð og hefur nú þegar landað þrisvar. Þeir hafa verið á Vestfjarðamiðum þar sem afli hefur verið ágætur og landað í Grundarfirði til að ná sem mestum tíma á veiðum. Aflinn hefur svo verið fluttur þaðan til vinnslu í Vestmannaeyjum og Hafnarfirði auk þess sem karfi og annar afli hefur farið í útflutning. Drangavík fór á sjó um síðustu helgi og er á veiðum. Kap á svo að hefja netaveiðar nú um miðjan september.“
Veiðarnar fara vel af stað hjá Breka VE.
Síldveiðar fram undan hjá uppsjávarskipum og saltfiskvinnsla í nýtt húsnæði
Þar sem ekki varð úr makrílveiðum hafa uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar verið verkefnalaus frá maíbyrjun þegar kolmunnaveiðum lauk en þau munu hefja síldveiðar nú í september. „Það verður því nóg að gera hjá okkur í haust. Til viðbótar við þetta allt erum við nú að færa saltfiskvinnsluna yfir í nýtt húsnæði, í nýbyggingunni á svæði Vinnslustöðvarinnar,“ segir Sindri að lokum.
Bætt var í saltfiskvinnsluna.