„Mikilvægt að vera sýnileg þar sem markaðurinn mótast“
Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar tók þátt í stærstu og mikilvægustu sjávarútvegssýningu heims, Seafood Expo Global / Seafood Processing Global 2026, sem haldin var í Barcelona dagana 21.–23. apríl.
Sýningin var sú stærsta til þessa, með yfir 2.300 sýnendur frá um 86 löndum og tugþúsundir gesta sem koma að sjávarútvegi víðs vegar að úr heiminum.
Undirbúningur lykill að árangri
Daginn áður en sýningin hófst kom hópur Vinnslustöðvarinnar saman ásamt fulltrúum dótturfélaga á sölu- og markaðsfundi í Barcelona.
„Þessi fundur er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur. Þar náum við að stilla saman strengina, fara yfir stöðuna á mörkuðum og tryggja að við séum með skýr og samræmd skilaboð inn í sýninguna,“ segir Björn Matthíasson, rekstarstjóri hjá VSV Seafood Iceland.
Í VSV básnum á sýningunni.
Lífleg sýning og mikil aðsókn
Aðsókn á sýninguna var mjög góð og viðskiptaumhverfið líflegt alla dagana. Þar komu saman framleiðendur, kaupendur og tæknifyrirtæki, auk fjölmargra annarra aðila sem tengjast greininni.
„Þetta er vettvangur þar sem við hittum okkar helstu viðskiptavini og samstarfsaðila. Það skiptir miklu máli að vera sýnileg þar sem markaðurinn mótast og eiga bein samtöl við fólk,“ segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri botnfisks hjá Vinnslustöðinni.
Hátt verð og takmarkað framboð í brennidepli
Eitt það sem var efst á baugi á sýningunni voru markaðsaðstæður – sérstaklega hátt hráefnisverð og takmarkað framboð á villtum botnfiski.
„Við finnum fyrir sterkri eftirspurn, en á sama tíma er framboð þröngt. Það skapar ákveðna spennu á mörkuðum og krefst þess að fyrirtæki hugsi enn meira í virðisaukningu og nýtingu,“ segir Björn.
Verð á þorski og skyldum tegundum hefur verið hátt og sveiflur á mörkuðum eru áfram til staðar, sem hefur áhrif á bæði framleiðendur og viðskiptavini.
Bás Vinnslustðvarinnar var vel sóttur alla sýninguna.
Áhersla á virðisaukningu og langtímasamstarf
Þrátt fyrir áskoranir í framboði var stemningin jákvæð og viðskipti lífleg. Áhersla var á langtímasamninga, stöðugleika í framboði og aukna verðmætasköpun.
„Við sjáum að viðskiptavinir leggja sífellt meiri áherslu á gæði, áreiðanleika og samstarf til lengri tíma. Þar teljum við Vinnslustöðina vel staðsetta,“ segir Sverrir.
Mikilvægt að vera á staðnum
Þátttaka í alþjóðlegum sýningum eins og Seafood Expo Global er lykilþáttur í starfsemi Vinnslustöðvarinnar.
„Þetta snýst ekki bara um að selja vörur heldur líka um að hlusta, læra og skilja hvert markaðurinn er að fara. Þess vegna er svo mikilvægt að vera á staðnum,“ segir Björn að lokum.