„Þau voru alveg heilluð“ – Víkin heimsótti Vinnslustöðina
Börnin á Víkinni, 5 ára deild, heimsóttu Vinnslustöðina í gær og vakti heimsóknin mikla lukku hjá hópnum.
„Þau voru mjög spennt að koma og fannst sérstaklega gaman að klæðast öllum hlífðarfatnaðinum frá toppi til táar,“ segir Helena Björk Þorsteinsdóttir sem tók á móti hópnum. „Sum þeirra voru svo ánægð með hárnetin að þau héldu þeim á sér allan daginn.“
Í heimsókninni fengu börnin að skoða starfsemina og kynnast sjávarafurðum af eigin raun. Þau sem þorðu og vildu fengu að snerta meðal annars þorsk, ufsa, spærling og humar.
„Það var mjög gaman að sjá hvað þau voru áhugasöm og óhrædd við að prófa eitthvað nýtt,“ segir Helena Björk.
Að lokinni heimsókn fengu börnin svo lítinn nammipoka með sér heim, sem vakti mikla ánægju. Áhrif heimsóknarinnar lét svo ekki á sér standa þegar komið var aftur í skólann.
„Þegar þau komu til baka fóru nokkrir drengir strax í Dubló-kubbana og byrjuðu að byggja skip og frystihús og voru að flytja fiskana inn. Það var hrikalega skemmtilegt að sjá hvað heimsóknin lifði áfram í leiknum hjá þeim,“ segir Helena Björk. Að hennar sögn tókst heimsóknin afar vel og börnin voru til fyrirmyndar allan tímann.
Börnin voru áhugasöm um fiskinn og vinnsluna.