Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Kap Kvöld 25 IMG 7539 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Áhöfnin á Kap VE kvartar ekki undan aflabrögðunum þessa dagana. Þegar fréttaritari VSV náði tali af Kristgeiri Arnari Ólafssyni skipstjóra síðdegis í gær voru þeir að leggja í hann til Eyja. „Það er búin að vera fínasta veiði. Fínasta blanda. Einhver 20-25 tonn á dag," segir hann er hann var spurður um aflabrögðin upp á síðkastið. 

Aðspurður um hvernig vertíðin sé samanborið við sama tíma og í fyrra segir Kristgeir að þetta sé miklu seinna á ferðinni núna í ár. „Það vantar alveg loðnuna."

Um 27 tonn í túr

Hvað hafið þið verið að fiska mikið í róðri?​ Svona 27 tonn.​ Þar af einhver sjö til átta tonn af ufsa.

​Þú talar um að það vanti loðnuna. Hafið þið skoðað hvað fiskurinn er að éta?​ Já, hann er að éta burstaorma. Maginn fullur af því. ​Það er eitthvað sem við höfum ekki séð áður.

​Spurður um hvar ​þeir hafi aðallega verið að veiðum undanfarið​ segir hann að þeir hafi verið á Hausnum á Selvogsbanka. 

Kristgeir Kap 2025 TMS IMG 7560

Kristgeir Arnar Ólafsson í brúnni á Kap.

Veðrið truflaði

​„Við byrjuðum í Breiðafirði​. Vorum þar ​nánast út feb​rúar. ​Í endan​n feb​rúar tókum einn túr við Eyjar. ​Það var engin veiði austan við Eyjar.​ Við erum ​núna að elta blettina fyrir ​vestan.​ T.d. ​á ​Klöppinni. 

En talið barst aftur að loðnunni. Hann segir þau tíðindi að hann hafi verið að frétta af loðnu út af ​Víkinni í dag. ​„Munurinn er að togararnir hafa ekkert verið að fá. Það er aðeins að lagast. Þeir eru ​núna að fá um tonn á tímann.​"

​S​purður um hvort veðrið​ hafi sett strik í veiðarnar​ hjá þeim segir hann að í kringum mánaðarmót​ hafi þeir v​erið frá veiðum í sex daga​ vegna veðurs.

Við komuna til Eyja í gær.

Fróðleikur um Burstaorma

Burstaormar eða Burstormar eru hryggleysingjar af fylkingu liðorma. Þeir eru eitt algengasta dýrið á sjávarbotni hér við land og getur verið mörg þúsund burstaormar á hvern fermetra. Af þeim eru til meira en 6 þúsund tegundir sem flestar eru minni en 10 millimetrar á lengd en þó eru til stærri og allt upp í risaskera sem getur orðið nokkrir tugir sentimetra á lengd.  Heimild: Wikipedia.

Burstaormar.

Kap 2025 Um Bord IMG 7564
Kristgeir Bru IMG 7555

Kristgeir að störfum í brúnni.