​Í gær gaf Hafrannsóknastofnun út ráðgjöf í loðnu upp á 8.589 tonn sem er lægsta úthlutun í sögu loðnuveiða á Íslandi (fyrir utan 0 árin). Af þessari úthlutun fær Ísland 4.683 tonn sem eru 54,5% af heildinni. Ríkið dregur svo 5,3% frá sem verða boðin upp. Þannig að íslenskar útgerðir fá úthlutað 4.435 tonn sem er 51,6% af heildinni. Af því er VSV (og Huginn) með 546 tonn. Að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs er Gullberg VE að græja sig og ​halda líklega á sjó í nótt​ eða í fyrramálið​.

Stefnir í spennandi helgi​!