Kæru sjómenn

Um leið og við, stjórnendur Vinnslustöðvarinnar, óskum ykkur gleðilegs sjómannadags viljum við þakka ykkur fyrir vel unnin störf á nýliðinni vetrarvertíð.

Vertíðin var einkar gjöful.  Sérstaklega var ánægjulegt hversu vel tókst til með loðnuvertíðina.  Gæði loðnunnar voru frábær, bæði frá náttúrunnar hendi og vegna vandaðrar meðhöndlunar á sjó og í landi. 

Nú, fyrir nokkrum dögum, hófst vinnsla loðnunnar í Asíu og verður hún komin í verslanir í júlí.  Með vertíðinni tókst okkur að bjarga verðmætum markaði loðnuafurða þar.

Þá má ekki gleyma hinni hefðbundnu vetrarvertíð hjá troll- og netabátum.  Framan af einkenndist hún af góðu veðri, en síðari hluta mars tóku brælur völdin sem stóðu fram í apríl.